Tilkynnt var um tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2024 í Iðnó þann 15. apríl sl.
Alls eru 15 bækur tilnefndar í þremur flokkum:
Tilnefningar í flokki frumsaminna skáldverka
- Hrím eftir Hildi Knútsdóttur (JPV útgáfa)
- Bannað að drepa eftir Gunnar Helgason (Mál og menning)
- Mömmuskipti eftir Arrndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur (Mál og menning)
- Stolt eftir Margréti Tryggvadóttur (Mál og menning)
- Svona tala ég eftir Helen Cova (Karíba)
Tilnefningar í flokki myndlýsinga
- Skrímslavinafélagið myndlýsing Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir (JPV útgáfa)
- Fjaðrafok í mýrinni myndlýsing Sigrún Eldjárn (Mál og menning)
- Álfar myndlýsing Rán Flygenring (Angústúra)
- Ég þori! Ég get! Ég vil! myndlýsing Linda Ólafsdóttir (Mál og menning)
- Einstakt jólatré myndlýsing Linn Janssen (Mál og menning)
Tilnefningar í flokki þýðinga
- Múmínálfarnir og hafshljómsveitin þýðing Gerður Kristný (Mál og menning)
- Þegar Ída litla vildi gera skammarstrik þýðing Þórarinn Eldjárn (Mál og menning)
- Tannburstunardagurinn mikli þýðing Ásta Halldóra Ólafsdóttir (Kvistur bókaútgáfa)
- Hvernig er koss á litinn? þýðing Svanlaug Pálsdóttir (Kvistur bókaútgáfa)
- Hænsnaþjófurinn þýðing Ásta Halldóra Ólafsdóttir (Kvistur bókaútgáfa)
Í dómnefnd voru: Sunna Dís Jensdóttir (formaður), Anna C. Leplar, Arngrímur Vídalín
Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar verða veitt við hátíðlega athöfn í Höfða, þann 24. apríl kl. 11:00.