Eyvindur P. Eiríksson rithöfundur er fallinn frá á 91. aldursári. Eftir hann liggja skáldsögur, ljóðabækur, leikrit og fleiri ritverk. Meðal annars hlaut Eyvindur Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness fyrir skáldsögu sína, Landið handan fjarskans, árið 1997 og sama ár var hann tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir sama verk.
Eyvindur var félagi í Rithöfundasambandi Íslands í tæplega hálfa öld. Við þökkum honum samfylgdina og vottum ástvinum innilega samúð.



