Search
Close this search box.

Option og purchase-samningar

Ekki liggja fyrir heildarsamningar um option- og purchase þegar samið er við frumhöfund um gerð kvikmyndar eftir bók. En við gerð samninga um sölu á kvikmyndarétti er til margs að líta.

Máli skiptir m.a. að líta til fjárhæðar greiðslna þegar rétturinn er tekinn frá (svokallað option), til lengdar slíks tímabils sem og til fjárhæðar greiðslna þegar ákveðið er að hefja framleiðslu á kvikmynd sem byggð er á bókmenntaverki (svokallað purchase).

Þá skiptir máli að gæta að atriðum sem lúta að sæmdarrétti, atriðum sem lúta að nafngreiningu höfunda, hversu víðtækt framsal réttinda um er að ræða og hvernig skiptingu ágóða af verkefninu er háttað, ef um slíkt er samið.

Lögmaður RSÍ er Sigrún Ingibjörg Gísladóttir. Hún er sérstakur ráðgjafi sambandsins þegar kemur að höfundarétti og kvikmyndarétti. Allir félagsmenn eiga rétt á gjaldfrjálsri ráðgjöf hennar eftir nánar ákveðnum reglum.

Mikilvægt er að félagsmenn sem þurfa að gera option- eða purchase-samninga leiti aðstoðar á skrifstofu RSÍ. Slíkir samningar eru flóknir og að mörgu að huga. Félagsmenn sem standa í slíkum samningum eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu RSÍ sem vísar þeim áfram á lögmann RSÍ sem les slíka samninga yfir og aðstoðar við gerð þeirra en RSÍ greiðir kostnaðinn f.h. sinna félagsmanna.