Þær Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttir hlutu í dag Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur fyrir bókina Bestu vinir, (útgefandi Bókabeitan).
Bókin fjallar um dreng og stúlku sem kynnast þegar stúlkan flytur í næsta hús við drenginn. Í fyrstu líkar honum ekki við stúlkuna en það breytist þegar hún verður sessunautur hans í skólanum. Þau takast saman á við dularfulla ráðgátu sem snýst um atburði í skólanum og óvænt vinátta þróast með þeim.
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars: „Dómnefnd telur að Bestu vinir geti fallið ungum lesendum vel í geð og veitt þeim lestraránægju um leið og sagan sýni fram á gildi vináttu og fordómaleysis án þess að boðskapnum sé haldið sérstaklega að lesandanum.“
Dómnefnd skipuðu þau Þorgeir Ólafsson, Ragnheiður Gestsdóttir og Katrín Lilja Jónsdóttir. Á myndinni sjást höfundarnir ásamt dómnefnd og Hildi Björnsdóttur borgarstjóra sem afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða.
Rithöfundasamband Íslands óskar Evu Rún og Blævi hjartanlega til hamingju með verðlaunin og bókina!



