Search
Close this search box.

Ljósvakasjóður – skráningareyðublað

Rithöfundasamband Íslands (RSÍ) tekur við greiðslum frá Innheimtumiðstöð rétthafa (IHM). Greiðslurnar renna í Ljósvakasjóð sem úthlutar til höfunda og þýðenda leiktexta og annarra skáldverka í samræmi við reglur þessar. Hagþenkir annast úthlutanir til rétthafa fræðslu- og heimildaefnis eftir eigin reglum.

Réttur til greiðslu er bundinn því að viðkomandi verki hafi verið útvarpað, hafi verið gert aðgengilegt almenningi þannig að hver og einn geti fengið aðgang að verkinu á þeim stað, á þeirri stundu og með þeim búnaði er hann sjálfur kýs eða hafi verið gefið út á hljóðriti eða myndriti. Rétturinn nær til frumsaminna og þýddra verka, þ.m.t. leikins hljóðvarps- og sjónvarpsefnis, kvikmynda, stakra þátta eða þáttaraða, leikinna atriða, útvarpssagna, ljóða, brota úr verkum og annarra skáldverka. Séu fleiri en einn höfundur að sama verki, skiptist réttur til úthlutunar eftir samkomulagi þeirra.

Réttur til úthlutunar skv. 2. gr. er án tillits til félagsaðildar. Leitað er eftir skráningarupplýsingum rétthafa, sem telja sig eiga rétt til úthlutunar skv. 2. gr. Skráningarupplýsingum skal skilað á eyðublaðinu hér fyrir neðan.

Með umsóknum fylgi yfirlit yfir birt verk umsækjanda í hljóð- eða sjónvarpi. Taka skal fram lengd flutnings í mínútum og hlutfall ef höfundar eru fleiri en einn.

Ljósvakasjóður – reglur 

Skráningareyðublað