Kristján Þór Júlíusson þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra skipaði sl. haust starfshóp um gerð bókmenningarstefnu þar sem íslensk bókaútgáfa og aðstæður hennar yrðu skoðaðar.
Í skýrslunni eru settar fram tillögur að aðgerðum sem ætlað er að styrkja íslenska bókaútgáfu, efla höfunda og tryggja börnum aðgang að góðum bókum og námsefni.