Hallveig Thorlacius les upp úr nýútkomnum bókum í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, þriðjudaginn 13. desember kl. 17.
Bækurnar MARTRÖÐ, svo AUGAÐ og nú SVARTA PADDAN eru hörkuspennandi bækur fyrir aldurshópinn 9 til 109 ára og notalegt í skammdeginu að skríða með þær undir sæng.
Bækurnar verða til sölu með áritun höfundar.
Upplestur, veitingar, samvera og rúsínan sem leynist í pylsuendanum: Sigríður Thorlacius ætlar að syngja fyrir frænku sína og gesti. Allir velkomnir.