Tilnefningar til Maístjörnunnar

Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns verða veitt í tíunda sinn í maí. Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna ljóðabóka útgefinna 2025 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag. Tilnefndar bækur eru: Fyrir vísindin eftir Önnu Rós Árnadóttur. Útgefandi: Benedikt Fimm ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl. Útgefandi: Mál og menning Þyngsta frumefnið eftir […]
Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026 voru veitt í Höfða á síðasta vetrardegi. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri afhenti verðlaunin. Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar voru fyrst veitt sem Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur árið 1973. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á því sem vel er gert í bókaútgáfu fyrir unga lesendur og hvetja þá til bóklesturs. Verðlaunin eru veitt rithöfundum, myndhöfundum og þýðendum barnabóka fyrir […]
Tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar

Tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar árið 2026 voru tilkynntar í Mengi þann 16. apríl. Alls eru fimm bækur tilnefndar í þremur flokkum og verða verðlaunin afhent þann 22. apríl. Eftirtalin verk voru tilnefnd að þessu sinni: Frumsamin skáldverkBlaka, eftir Rán Flygenring, útgefandi: AngústúraEfri hæðin eftir Jón Lorange, útgefandi: LandasonurSilfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, útgefandi: Forlagið / Mál […]
Andlát: Steinar J. Lúðvíksson

Steinar Jóhann Lúðvíksson, rithöfundur og blaðamaður, lést 2. apríl síðastliðinn, 84 ára gamall. Steinar fæddist 30. september 1941. Hann sendi frá sér á sjötta tug bóka, meðal annars rómaða björgunar- og sjóslysasögu Íslands, Þrautgóðir á raunastund, í 20 bindum (1969-1988). Saga Garðabæjar kom út í fjórum bindum árið 2015. Einnig ritaði Steinar bækur um íþróttir […]
Gleðilega páska!

Skrifstofa RSÍ fer í páskafrí og er lokuð dagana 1.-7. apríl. Við opnum aftur miðvikudaginn 8. apríl. Við sendum félögum óskir um góða og gleðilega páska.
Árstíðarverur og Skólastjórinn tilnefnd

Fimmtudaginn 26. mars voru tilnefningar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs kynntar í Norræna húsinu og tilnefndum höfundum frá Íslandi fagnað. Í ár eru eftirfarandi bækur tilnefndar fyrir Íslands hönd: Árstíðarverur eftir Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen, myndhöfund Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson og Elínu Elísabetu Einarsdóttur, myndhöfund Rithöfundasambandið óskar þeim öllum til hamingju með […]
Sumarbókanir – opnað 11. mars kl. 12

Við viljum minna á að opnað verður fyrir sumarbókanir félagsfólks í vinnuhús RSÍ, Sléttaleiti og Norðurbæ þann 11. mars kl. 12.00. Húsin eru í vikuleigu í tólf vikur yfir sumarið, frá föstudegi til föstudags, 29. maí – 21. ágúst. Vikan kostar 15.000 kr. Ef fleiri vikur en ein koma til greina má skrifa það til vara í reitinn „Annað“ […]
Andlát: Sigurður Ingólfsson

Dr. Sigurður Ingólfsson lést um liðna helgi á sextugasta aldursári. Sigurður fæddist á Akureyri 31. júlí árið 1966, ólst þar upp og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri. Hann nam við Paul Valéry-háskólann í Montpellier og lauk þaðan doktorsgráðu í frönskum bókmenntum árið 2000. Sigurður kenndi um árabil við Menntaskólann á Egilsstöðum. Hann vann einnig […]
Ferðastyrkir – frestur til 1. apríl

Rithöfundasamband Íslands veitir félagsmönnum ferðastyrki til utanlandsferða. Rétt til að sækja um ferðastyrk hafa þeir sem hafa verið félagsmenn í RSÍ í a.m.k. eitt ár og eru skuldlausir við sambandið. Úthlutað er eftir úthlutunarreglum og sótt er um á rafrænu eyðublaði á heimasíðu RSÍ. Hægt er að sækja um fyrir ferðum sem þegar hafa verið farnar ef sótt er […]
Fjöruverðlaunin afhent

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára, voru afhent í Höfða fimmtudaginn 5. mars. Í flokki fagurbókmennta hlaut Maó Alheimsdóttir verðlaunin fyrir ljóðabókina Hvalbak. Í flokki barna- og unglingabókmennta hreppti Brynhildur Þórarinsdóttir verðlaunin fyrir Silfurgengið. Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis voru það þær Kristín Guðrún Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Auður Aðalsteinsdóttir sem voru verðlaunaðar fyrir […]