Úthlutað hefur verið til höfunda vegna afnota á bókasöfnum 2025
Fjöldi útlána frá Landskerfi bókasafna var 1.499.295, frá Hljóðbókasafni Íslands 239.948 og frá Rafbókasafni 3.817.
Sjóðurinn er deilisjóður þar sem útlánum er deilt í þá upphæð sem til úthlutunar er hverju sinni. Í ár var úthlutað kr. 213 778 217.-
Greiðslu fengu 930 höfundar/rétthafar. Lágmarksgreiðsla var 10.654 kr. Greiðsla pr. útlán var 172 kr.
Höfundar og rétthafar sem fá greiðslu fá jafnframt senda skilagrein í tölvupósti ef netfang þeirra er skráð hjá sjóðnum.
Þeir sem ekki fengu greiðslu úr sjóðnum 20. maí s.l. hafa ekki náð lágmarksgreiðslunni kr. 10.654.-
Vakin er athygli á að útsending skilagreina tekur tíma og eru höfundar beðnir að sýna þolinmæði.



