Sumarlokun skrifstofu

Skrifstofan í Gunnarshúsi verður lokuð frá og með miðvikudeginum 1. júlí vegna sumarfrís. Við opnum aftur föstudaginn 7. ágúst. Bestu sumarkveðjur til allra félaga!
Ályktun samþykkt á aðalfundi RSÍ 2026

Rithöfundasamband Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að nálgast þróun gervigreindar með mennskuna að leiðarljósi. Mikilvægt er að kalla rithöfunda og aðra listamenn að borðinu til að marka stefnu og bregðast við hraðri þróun tækninnar, og svara grundvallarspurningum um það hvernig framtíð við viljum. Tæknin skapar mörg tækifæri fyrir íslenska tungu, bókmenntir og listir, en einnig […]
Andri Snær & Þorsteinn sæmdir fálkaorðunni

Á þjóðhátíðardaginn sæmdi Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, fjórtán manns heiðursmerki íslensku fálkaorðunnar við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Fálkaorðan er æðsta heiðursmerki sem íslenska ríkið veitir mönnum. Forseti Íslands er stórmeistari orðunnar og sæmir einstaklinga heiðursmerkinu að tillögu Orðunefndar. Meðal orðuhafa voru tveir félagsmenn í Rithöfundasambandinu, þeir Andri Snær Magnason og Þorsteinn Eggertsson. Andri hlaut fálkaorðuna […]
Natasha S. hlaut Maístjörnuna

Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, var afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni miðvikudaginn 3. júní. Var það í tíunda sinn sem verðlaunin eru veitt. Maístjörnuna fyrir ljóðabók ársins 2025 hlaut Natasha S. fyrir bókina Mara kemur í heimsókn. Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir: „Sterk bók og heildstæð, ástríðufull og heiðarleg, […]
Maístjarnan verður veitt 3. júní

Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn bjóða öllum ljóðsins vinum á afhendingu Maístjörnunnar vegna ársins 2025 en Maístjarnan verður veitt í tíunda sinn við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni miðvikudaginn 3. júní, kl. 15. Dagskrá: Örn Hrafnkelsson landsbókavörður býður gesti velkomna og kynnir dagskrá. Verðlaunahafinn kynntur og fluttur rökstuðningur dómnefndar fyrir valinu. Landsbókavörður afhendir verðlaunin. Verðlaunahafinn […]
Bókasafnssjóður – úthlutun

Úthlutað hefur verið til höfunda vegna afnota á bókasöfnum 2025 Fjöldi útlána frá Landskerfi bókasafna var 1.499.295, frá Hljóðbókasafni Íslands 239.948 og frá Rafbókasafni 3.817. Sjóðurinn er deilisjóður þar sem útlánum er deilt í þá upphæð sem til úthlutunar er hverju sinni. Í ár var úthlutað kr. 213 778 217.- Greiðslu fengu 930 höfundar/rétthafar. Lágmarksgreiðsla var […]
Vorvindar 2026

Laugardaginn 9. maí veitti Íslandsdeild IBBY sínar árlegu viðurkenningar fyrir framlög til barnamenningar, Vorvinda, við athöfn í Borgarbókasafninu Grófinni. Vorvindum er ætlað að vekja athygli á verkum og starfsemi sem hleypir ferskum og endurnærandi vindum inn í íslenska barnamenningu og því sem vel er gert innan barnamenningar. Að þessu sinni voru Vorvindahafarnir þrír. Sesselía Ólafsdóttir […]
Guðjón Friðriksson gerður að heiðursborgara

Sagnfræðingurinn og rithöfundurinn Guðjón Friðriksson var á dögunum útnefndur heiðursborgari Reykjavíkur. Með því vill Reykjavíkurborg þakka fyrir ómetanlegt framlag hans til sögunnar, menningarinnar og borgarinnar. Fáir eru betur að nafnbótinni komnir en Guðjón sem hefur á afar fjölbreyttan hátt rannsakað og miðlað sögu Reykjavíkur, meðal annarra starfa á merkum ferli. Á myndinni sést Guðjón við […]
Sigrún Eldjárn heiðruð í borginni

Sérstök bókmenntamerking til heiðurs Sigrúnu Eldjárn var afhjúpuð í Lækjargötu við Tjörnina föstudaginn 8. maí síðastliðinn. Skemmtileg merking á brunnloki vísar í bókina Allt í plati sem var fyrsta bók Sigrúnar. Sigrún Eldjárn er einn dáðasti barnabókahöfundur þjóðarinnar og hefur glatt ólíkar kynslóðir lesenda með sínum frábæru verkum í rúmlega 45 ár. Höfundareinkenni hennar þekkja […]
Starfsstyrkir: Umsóknarfrestur til 26. maí

Rithöfundasamband Íslands veitir starfsstyrki úr Höfundasjóði RSÍ. Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári. Úthlutað er eftir úthlutunarreglum og sótt er um á rafrænu eyðublaði á heimasíðu RSÍ. Rétt til að sækja um starfsstyrk úr Höfundasjóði RSÍ hafa starfandi rithöfundar óháð félagsaðild í RSÍ, þ.e. barnabókahöfundar, handritshöfundar, leikskáld, ljóðskáld, skáldsagna- og smásagnahöfundar, unglingabókahöfundar, þýðendur, ævisagnahöfundar og […]