Aðalfundur 15. apríl 2021 – framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs
Aðalfundur RSÍ verður haldinn fimmtudaginn 15. apríl 2021. Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs er til 10. mars nk. Kjósa þarf tvo meðstjórnendur og einn varamann, skv. 5. grein laga Rithöfundasambands Íslands. Skrifleg framboð til stjórnarkjörs berist skrifstofu RSÍ eigi síðar en kl. 14.00 fimmtudaginn 10. mars n.k
Gestadvöl á Hildibrand Hótel
Opið er fyrir bókanir í dvalarsetur á Hildibrand Hótel í Neskaupstað. Dvölin er til eins mánaðar í senn og kostar 50.000 kr. Innifalið er gisting á Hildibrand Hótel, aðgangur að sameiginlegum vinnustofurýmum og frír aðgangur í Sundlaug Norðfjarðar meðan á dvöl stendur. Menningarstofa Fjarðarbyggðar aðstoðar við skipulagningu á upplestrum í skólum og stofnunum, kjósi höfundar […]
Andri Snær Magnason hlýtur viðurkenningu Rithöfundasjóðs RÚV
Andri Snær Magnason hlýtur viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins fyrir ritstörf. Í rökstuðningi úthlutunarnefndar segir meðal annars: „Viðurkenningar Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins eru fyrstu og elstu rithöfundarverðlaun okkar Íslendinga og þær eru veittar fyrir ævistarf höfundar, frekar en einstök verk. Ævistarf Andra Snæs er ef til vill ekki orðið stórt í blaðsíðum talið, en gæðin hafa verið þeim mun […]
Elísabet Rún til La Rochelle
Myndasöguhöfundurinn Elísabet Rún var valin úr hópi umsækjenda um dvöl í La Rochelle á vegum sendiráðs Frakklands á Íslandi, Centre Intermondes de la Rochelle, Rithöfundasambands Íslands, Alliance Française de Reykjavik og Institut Français. Umsóknir um dvöl i La Rochelle voru opnar rithöfundum og myndasöguhöfundum og þurftu þeir að sækja um fyrir 4. desember síðastliðinn. Í […]
Úthlutun listamannalauna 2021
Til úthlutunar úr launasjóði rithöfunda eru 646 mánaðarlaun, sem er 91 mánaða aukning frá 555 lögfestum mánuðum, til kominn vegna faraldurs. Starfslaun listamanna eru 409.580 kr. á mánuði samkvæmt fjárlögum 2021. Um verktakagreiðslur er að ræða. Eftirtöldum rithöfundum voru veitt starfslaun 12 mánuðir Andri Snær Magnason Auður Jónsdóttir Bergsveinn Birgisson Einar Már Guðmundsson Eiríkur Örn […]
Nýskráningar vegna greiðslna vegna útlána á bókasöfnum
Af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á bókasöfnum er úthlutað til rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa, samkvæmt útlánum og afnotum verka þeirra á bókasöfnum. Um úthlutun gilda lög nr. 91/2007 með síðari breytingum og reglur nr. 323/2008. Til að öðlast rétt til úthlutunar úr sjóðnum þurfa höfundar og rétthafar að sækja um á sérstökum […]
Tilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunanna
Tilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunanna kynntar í Kiljunni á RÚV þann 16. desember. Að verðlaununum stendur Bandalag þýðenda og túlka í samstarfi við Rithöfundasamband Íslands og Félag íslenskra bókaútgefenda. Þau eru veitt fyrir bestu þýðingu á bókmenntaverki og er tilgangur þeirra að vekja athygli á ómetanlegu framlagi þýðenda til íslenskrar menningar. Sjö þýðingar eru tilnefndar að […]
Verðlaun bóksala
Ár hvert kýs starfsfólk bókaverslana á Íslandi bestu bækur ársins. Verðlaunin voru tilkynnt í Kiljunni þann 16. desember sl. Fræðibækur og handbækur 1. Konur sem kjósa eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur, Ragnheiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur.2. Spænska veikin eftir Gunnar Þór Bjarnason.3. Fuglinn sem gat ekki flogið eftir Gísla Pálsson. Þýddar barnabækur […]
Aðventulestur 2020
Árlegum upplestri á Aðventu Gunnars Gunnarssonar verður streymt á netinu að þessu sinni. Lesari verður Ólafur Darri Ólafsson leikari sem í haust hreif landsmenn með sér í hlutverki annars Benedikts í þáttaröðinni um Ráðherrann. Í þáttunum var óspart vísað í sögu Gunnars og Ólafur Darri er því ekki óvanur að vera í för með þeim […]
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
Rithöfundurinn Gerður Kristný hlaut þann 16. nóvember s.l. Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Þau eru árlega veitt einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar. „Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar minna okkur á margbreytileika miðlunar íslenskunnar. Íslenskan […]