Search
Close this search box.

FJÖRUVERÐLAUNIN 2021

Verðlaunahafar ásamt dómnefnd og borgarstjóra.

Fjöruverðlaunin,  bókmenntaverðlaun kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi, voru afhent við hátíðlega athöfn þann 8. mars 2021, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna.

Verðlaunin hlutu:

  • Í flokki fagurbókmennta:
    Hetjusögur eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur (Benedikt bókaútgáfa)
  • Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis:
    Konur sem kjósa: Aldarsaga eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur, Ragnheiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur (Sögufélag)
  • Í flokki barna- og unglingabókmennta:
    Iðunn & afi pönk eftir Gerði Kristnýju (Mál og menning)

Þetta í fimmtánda sinn sem Fjöruverðlaunin eru veitt og í sjöunda sinn frá því að borgarstjóri Reykjavíkur, bókmenntaborgar UNESCO, gerðist verndari verðlaunanna. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri bauð höfunda velkomna í Höfða og streymt var af viðburðinum á samfélagsmiðlum. Verðlaunahafar fengu verðlaunagripi gerða af listakonunni Koggu.

Rithöfundasamband Íslands óskar Gerði Kristnýju, Kristínu Svövu Tómasdóttur og öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju með verðlaunin!

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email