21. Janúar á 100 ára fæðingarafmæli Jóns úr Vör voru úrslit sextándu samkeppninnar um Ljóðstaf Jóns úr Vör tilkynnt við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi. Handhafi Ljóðstafsins árið 2017 er ljóðskáldið Ásta Fanney Sigurðardóttir. Í öðru sæti var Áslaug Jónsdóttir og í þriðja sæti Fríða Ísberg.
Það var hátíðleg stemning á afhendingunni en við sama tækifæri voru afhent verðlaun og viðurkenningar í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Nemendur úr Kársnesskóla voru þar hlutskarpastir en Rebekka Rún Oddgeirsdóttir lenti í fyrsta sæti og Ásta Hauksdóttir í öðru sæti. Benedikt Árni Björnsson úr Salaskóla lenti í þriðja sæti, en öll eru þau í tíunda bekk. Ellefu önnur skáld á aldrinum 11-16 ára fengu viðurkenningar í keppninni en um 200 ljóð bárust í keppnina.
Í dómnefnd sátu skáldin Anton Helgi Jónsson, formaður, Ásdís Óladóttir og Bjarni Bjarnason. Hátt í þrjú hundruð ljóð frá skáldum af öllu landinu bárust í keppnina sem lista- og menningarráð Kópavogs stendur fyrir.
Ásta Fanney, handhafi Ljóðstafsins, fær farandgrip til varðveislu í eitt ár, verðlaunagrip til eignar en auk þess fá skáldin í þremur efstu sætunum peningaverðlaun. Sjö ljóð fengu einnig viðurkenningu dómnefndar og voru þau lesin upp við athöfnina.
Úr umsögn dómnefndar um ljóð Ástu Fanneyjar, Silkileið nr. 17:
Umbreytingar einkenna verðlaunaljóðið; það kallar fram í huganum myndir af nánd og nálægð en um leið af fjarska og fjarlægð. Ljóðið virðist fjalla um samskipti tveggja einstaklinga en um leið tengir það saman gamla og nýja tíma og ólíka menningarheima. Það er ró og æðruleysi í rödd þeirrar sem talar í ljóðinu og samt er engu líkara en úr orðunum verði til kvikmynd með hröðum klippingum. Það er farið hratt milli sviða frá snjó og vetri og þröngu sjónarhorni á plöntu í krukku og þaðan yfir í stærri heim með vísunum til tenginga við Austurlönd fjær og eyðimerkur í Miðausturlöndum uns snúið er aftur til einangraðar sveitar og veturs á Íslandi. Verðlaunaljóð er gott dæmi um sköpunarmáttinn sem býr í málinu og skáldskapnum og sýnir vel hvað eitt lítið ljóð getur rúmað stóran heim og opnað margar leiðir til túlkunar.
Verðlaunaljóðið í samkeppninni um Ljóðstaf Jóns úr Vör 2017:
Silkileið nr. 17
þú breyttir mér óvart í vetur
og hélst ég væri planta (og sól og ský)
sem vökvaði sjálfa sig með snjó
og geymdir mig í brjóstvasa í krukku með mold
og úr laufunum láku silkileiðir í gegnum saumana
að tölu sem ég þræddi eitt sinn með hári
ég ferðast þaðan á hraða úlfalda
því annars verður sálin eftir segja arabar
í eyðimörk skyrtu þinnar
(sem minnir á handklæði)
er ég týnd í sveit milli sanda
of nálægt
til að geta aðskilið
jörð og skinn
svo ég skauta bara hér
þar til vorar
Ásta Fanney Sigurðardóttir
Ljóðstafur Jóns úr Vör hefur verið afhentur á fæðingardegi skáldsins, 21. janúar, frá árinu 2002. Í ár eru 100 ár liðin frá fæðingu Jóns, sem lést árið 2000. Jón starfaði lengst af í Kópavogi þar sem hann var hvatamaður að stofnun bókasafnsins og síðar fyrsti bæjarbókavörður bæjarfélagsins. Jón starfaði að menningarmálum með ýmsum hætti, var til dæmis bæði bóksali og ritstjóri, en fyrst og fremst var hann brautryðjandi í íslenskri ljóðagerð.