Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem úthlutað verður árið 2023 í samræmi við ákvæði laga nr. 57/2009 . Opið er fyrir umsóknir til 3. október 2022 kl. 15:00.
Samkvæmt lögum um listamannalaun eru til úthlutunar 555 mánaðarlaun (46 árslaun) út launasjóði rithöfunda.
Í umsóknum er óskað eftir:
- lýsingu á vinnu og listrænu gildi verkefna (50% vægi)
- ferli umsækjenda (30% vægi)
- verk- og tímaáætlun (20% vægi)
Umsóknir eru einstaklingsumsóknir og nota þarf rafræn skilríki við gerð þeirra.
Sviðslistahópar sækja um í launasjóð sviðslistafólk í gegnum umsókn Sviðslistasjóðs.
Ef við á þarf að tilgreina umsóknarnúmer samtarfslistamanna í umsóknum.
Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009.
Á vef listamannalauna eru umsóknar- og skýrsluform, matskvarði, áherslur stjórnar, lög og reglugerð og leiðbeiningar um gerð umsókna.
Hægt er að senda fyrirspurn á: Senda póst.
Listamenn eru hvattir til að skila umsóknum tímanlega en umsóknarfrestur rennur út 3. október 2022 kl. 15:00.