Í gær var tilkynnt um tilnefningar til Astrid Lindgren Memorial Award 2027, en verðlaunin eru árlega veitt manneskju eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Í þetta sinn eru tilnefndir 277 aðilar frá alls 80 löndum. Frá Íslandi eru tilnefndar þær Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, en afrekaskrá þeirra á sviði barna- og ungmennabókmennta þarf vart að kynna fyrir íslenskum lesendum.
Rithöfundasamband Íslands sendir þeim Sigrúnu og Arndísi hamingjuóskir!


