Laugardaginn 26. ágúst verður verðlaunaafhending úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar, skálds og Ingibjargar Sigurðardóttur konu hans frá Kirkjubóli.
Að sjóðnum standa: Erfingjar og afkomendur Guðmundar og Ingibjargar, Búnaðarsamband Vesturlands, Rithöfundasamband Íslands, Samband borgfirskra kvenna og Ungmennasamband Borgarfjarðar. Þetta er í 10. sinn sem veitt eru verðlaun úr sjóðnum, annars vegar ljóðaverðlaun og hins vegar menningarverðlaun og var það fyrst gert árið 1994.
Verðlaunaafhendingin fer fram í Snorrastofu í Reykholti og hefst klukkan 15:00 og eru allir velkomnir.
Fyrri menningarverðlaunahafar:
1994 Fræðimennirnir Ari Gíslason og Bjarni Backmann
1997 Orgelkaupasjóður Reykholtskirkju
2000 Ungmennafélag Reykdæla og Ungmennafélagið Dagrenning
2004 Bragi Þórðarson bókaútgefandi
2006 Páll Guðmundsson myndlistarmaður
2008 Jóhanna Þorvaldsdóttir geitabóndi
2010 Sögufélag Borgarfjarðar
2012 Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum
2014 Karlakórinn Söngbræður
Fyrri ljóðaverðlaunahafar:
1994 Hannes Sigfússon
1997 Þuríður Guðmundsdóttir
2000 Ingibjörg Haraldsdóttir
2004 Þorsteinn frá Hamri
2006 Þórarinn Eldjárn
2008 Hjörtur Pálsson
2010 Gerður Kristný Guðjónsdóttir
2012 Vilborg Dagbjartsdóttir
2014 Jóhann Hjálmarsson