Steinar Jóhann Lúðvíksson, rithöfundur og blaðamaður, lést 2. apríl síðastliðinn, 84 ára gamall.
Steinar fæddist 30. september 1941. Hann sendi frá sér á sjötta tug bóka, meðal annars rómaða björgunar- og sjóslysasögu Íslands, Þrautgóðir á raunastund, í 20 bindum (1969-1988). Saga Garðabæjar kom út í fjórum bindum árið 2015. Einnig ritaði Steinar bækur um íþróttir en hann gegndi trúnaðarstörfum á vettvangi íþróttahreyfingarinnar auk þess sem hann var í fararbroddi íþróttafréttamennsku hérlendis. Steinar starfaði sem blaðamaður og við útgáfustörf.
Steinar fékk riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2018 fyrir framlag sitt til sagnaritunar og blaðamennsku.
Steinar var félagi í Rithöfundasambandi Íslands frá árinu 1986. Við sendum ástvinum hans samúðarkveðju og þökkum samfylgdina.


