Andlát: Steinar J. Lúðvíksson

Steinar Jóhann Lúðvíksson, rithöfundur og blaðamaður, lést 2. apríl síðastliðinn, 84 ára gamall. Steinar fæddist 30. september 1941. Hann sendi frá sér á sjötta tug bóka, meðal annars rómaða björgunar- og sjóslysasögu Íslands, Þrautgóðir á raunastund, í 20 bindum (1969-1988). Saga Garðabæjar kom út í fjórum bindum árið 2015. Einnig ritaði Steinar bækur um íþróttir […]