Aðalfundur Rithöfundasambands Íslands var haldinn í Gunnarshúsi þann 28. apríl 2022 sl.
Á fundinum var Karl Ágúst Úlfsson endurkjörinn formaður RSÍ og Margrét Tryggvadóttir var kjörin varaformaður. Jón Gnarr var endurkjörinn meðstjórnandi og Sigríður Hagalín Björnsdóttir kom ný í stjórn í sæti varamanns. Auk þeirra sitja áfram í stjórn Sindri Freysson meðstjórnandi og Ragnar Jónasson varamaður sem nú tekur sæti meðstjórnanda í stað Margrétar Tryggvadóttur. Vilborg Davíðsdóttir og Börkur Gunnarsson viku úr stjórn og formaður þakkaði þeim þeirra störf.
Skýrslu formanns má lesa hér.