Search
Close this search box.

Tilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunanna

grofin_kaaTilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunanna voru kynntar í Menningarhúsinu Grófinni fimmtudaginn 24. nóvember. Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir vandaða þýðingu á fagurbókmenntaverki hafa verið veitt árlega frá árinu 2005 en verðlaunin voru stofnuð til að vekja athygli á ómetanlegu framlagi þýðenda til íslenskra bókmennta. Í ár voru tilnefndar fimm þýðingar og tíu þýðendur, en í dómnefnd sátu Tinna Ásgeirsdóttir (formaður), Ingunn Ásdísardóttir og Davíð Stefánsson.

Tilnefndir þýðendur og umsögn dómnefndar um verkin eru þessir:

Árni Óskarsson fyrir þýðingu sína á Fjársjóðseyjunni eftir Robert Louis Stevenson sem Mál og menning gefur út.
Fjársjóðseyjan er ein vinsælasta ævintýrasaga allra tíma og löngu tímabært að hún komi út óstytt í íslenskri þýðingu. Sagan er hvort tveggja í senn, heillandi ævintýri og gráglettin lýsing á breyskum og fláráðum mönnum. Bókina má öðrum þræði lesa sem viðbrögð Stevensons við bölsýnishugmyndum og efahyggju 19. aldar enda sver hún sig í ætt við gömul ævintýri þar sem málað er björtum, hreinum litum og hugarheimur og siðferði barnsins ræður ríkjum. Nákvæm og metnaðarfull túlkun Árna Óskarssonar á tærum stíl Stevensons kemur andrúmslofti sögunnar til skila á áreynslulausri og auðugri íslensku.

Olga Holownia ásamt Áslaugu Agnarsdóttur, Braga Ólafssyni, Magnúsi Sigurðssyni og Óskari Árna Óskarssyni fyrir þýðingu á ljóðasafninu Neyðarútgangur eftir Ewu Lipska sem Dimma gefur út.
Neyðarútgangur er úrval úr öllum ljóðabókum Ewu Lipska og er fyrsta umfangsmikla íslenska þýðingin á höfundarverki eins fremsta ljóðskálds Pólverja. Lipska hefur skapað margbrotinn og ögrandi ljóðheim sem einkennist af íróníu, þverstæðum og yfirvegaðri meinfyndni, myndmálið er óvænt og frumlegt og myndlíkingar oft á mörkum súrrealisma. Það er fengur að íslenskum þýðingum á ljóðum eftir samtímaskáld og Neyðarútgangur er vel heppnað samvinnuverkefni undir ritstjórn Olgu Holownia þar sem þýðendurnir fimm leysa hverja þrautina á fætur annarri svo úr verður heilsteypt og veglegt ljóðasafn á tærri og lipurri íslensku.

Hallgrímur Helgason fyrir þýðingu sína á Óþelló eftir William Shakespeare. Vaka-Helgafell gefur út.
Í annað sinn fetar Hallgrímur Helgason í fótspor þeirra Matthíasar Jochumssonar og Helga Hálfdanarsonar og þýðir leikrit eftir Shakespeare. Nú er það ástarharmleikurinn um máríska hershöfðingjann Óþelló, hefðarmeyna Desdemónu og svikarann Jagó. Verkið tekur á fjölmörgum málefnum sem eru ekkert síður í umræðu í dag en á tímum höfundarins, kynþáttaríg og fordómum, hlutskipti kynjanna og valdabrölti, og persónulegri þáttum – ást og hatri, afbrýði, grimmd og framhjáhaldi. Þýðing Hallgríms er afar vönduð, fyndin og léttleikandi og skilar merkingu textans á auðskiljanlegu og skýru máli.

Sigurður Pálsson og Sölvi Björn Sigurðsson fyrir þýðingar á ljóðasöfnunum Uppljómanir & Árstíð í helvíti eftir Arthur Rimbaud sem JPV gefur út.
Arthur Rimbaud er einn af frumkvöðlum nútímaljóðagerðar og einn helsti forveri súrrealistanna. Ljóðasöfnin sem nú koma út í þýðingum Sigurðar Pálssonar og Sölva Björns Sigurðssonar, Uppljómanir & Árstíð í helvíti, eru tímamótaverk sem umbyltu vestrænni ljóðlist. Eitt helsta einkenni ljóða Rimbauds er sérkennileg hrynjandi, litadýrð og villtar myndir þar sem hver texti skapar litla veröld. Sigurði Pálssyni og Sölva Birni Sigurðssyni tekst með vönduðum og hugvitssamlegum þýðingum einkar vel að viðhalda sköpunarkrafti texta sem endurnýjar sig í hvert sinn sem hann er lesinn.

Ófeigur Sigurðsson fyrir þýðingu á skáldsögunni Verndargripur eftir Roberto Bolaño sem Sæmundur gefur út.
Bolaño er einn áhrifamesti höfundur sem komið hefur fram í hinum spænskumælandi heimi síðastliðna áratugi og í Verndargrip koma fram helstu höfundareinkenni hans, ofbeldi og duldir þræðir hins illa vefja sig um heiminn og frásagnarstíllinn er ákafur og flæðandi. Bókin er leyndardómsfullur og ástríðufullur óður til ljóðlistarinnar og veitir hlutdeild í einstakri sýn á lífið. Þýðing Ófeigs Sigurðssonar gerir orðfæri Bolaños og einkennandi setningabyggingu góð skil og í henni streymir frjó og kröftug rödd höfundar áreynslulaust fram á mergjuðu og skýru máli.

Bandalag þýðenda og túlka færir dómnefnd kærar þakkir fyrir vel unnin störf, starfsfólki Borgarbókasafnsins fyrir einstaka lipurð og elskulegheit og öllum gestum fyrir komuna.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email