RSÍ sendir grunnskólum landsins lista yfir þá félagsmenn RSÍ sem eru með nýjar barna,- unglinga- eða fjölskyldubækur í flóðinu 2024 og eru tilbúnir til að fara í skólaheimsóknir á aðventu. Þeir sem vilja vera með á listanum þurfa að fylla út skráningareyðublaðið fyrir 11. nóvember.
Félagsmenn sem nýta sér þessa þjónustu RSÍ vinna samkvæmt viðmiðunartaxta RSÍ.