Bækurnar Fiskarnir hafa enga fætur eftir Jón Kalman Stefánsson og Skessukatlar eftir Þorstein frá Hamri eru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár sem framlag Íslands.
Tilkynnt var um tilnefningarnar í morgun.
Tilkynnt verður hver hlýtur verðlaunin við athöfn í Reykjavík 27. október. Sigurvegarinn fær 350 þúsund danskar krónur.
Tilnefningar:
Danmörk
- Pia Juul: Avuncular. Onkelagtige tekster. Ljóðabók, Tiderne Skifter, 2014
- Helle Helle: Hvis det er. Skáldsaga, Samleren, 2014
Samíska tungumálasvæðið
- Niillas Holmberg: amas amas amasmuvvat. Ljóðabók, DAT, 2013
Finnland
- Peter Sandström:Transparente Blanche. Skáldsaga, Schildts & Söderströms, 2014
- Hannu Raittila: Terminaali. Skáldsaga, Siltala, 2013
Færeyjar
- Sólrún Michelsen: Hinumegin er mars. Skáldsaga, Mentunargrunnur Studentafelagsins, 2013
Grænland
- Niviaq Korneliussen: HOMO sapienne. Skáldsaga, Milik, 2014
Ísland
- Jón Kalman Stefánsson: Fiskarnir hafa enga fætur. Skáldsaga, Bjartur, 2013
- Þorsteinn frá Hamri: Skessukatlar. Ljóðabók, Mál og menning, 2013
Noregur
- Kristine Næss: Bare et menneske. Skáldsaga, Oktober, 2014
- Jon Fosse: Trilogien: Andvake. Olavs draumar. Kveldsvævd. Skáldsaga, Samlaget, 2014
Svíþjóð
- Therese Bohman: Den andra kvinnan. Skáldsaga, Norstedts, 2014
- Bruno K. Öijer: Och natten viskade Annabel Lee. Ljóðabók, Wahlström & Widstrand, 2014
Álandseyjar
- Karin Erlandsson: Minkriket. Skáldsaga, Schildts & Söderströms, 2014