Umsóknarfrestur: 2. október 2023, kl. 15:00
Í umsóknum er óskað eftir:
- Lýsingu á vinnu og listrænu gildi verkefna (50% vægi)
- Ferli umsækjenda (30% vægi)
- Verk- og tímaáætlun (20% vægi)
Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009. Skýrslur eru á „mínum síðum“ umsækjenda.
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Rannís
Listamenn eru hvattir til að skila umsóknum tímanlega.