Félagsfundur RSÍ verður haldinn fimmtudaginn 31. mars kl. 20.00 að Dyngjuvegi 8.
Stjórn Bandalags íslenskra listamanna hefur beint því til aðildarfélaga sinna að farið verði að ábendingum starfshóps sem BÍL setti á laggirnar í janúar 2016 til að yfirfara verklag aðildarfélaga við tilnefningar í úthlutunarnefndir listamannalauna. Þannig yfirfari stjórnir félaganna verklag sitt og taki afstöðu til þess hvort tilnefningar í úthlutunarnefndir skuli vera á hendi stjórna félaganna eða hvort skipuð verði sérstök uppstillingarnefnd sem fái það hlutverk að gera tillögur að fulltrúum í viðkomandi úthlutunarnefnd. Aðferðin við tilnefningarnar hljóti staðfestingu á félagsfundi.
Dagskrá fundar:
1. Fyrirkomulag tilnefninga í úthlutunarnefnd
2. Önnur mál