Auglýst er eftir umsóknum spennusagnahöfunda um dvöl í dvalarsetrinu Centre Intermondes í maí 2023. Umsóknir skulu vera á ensku.
Lágmarksdvalartími er þrjár vikur. Innifalið í styrknum er dvöl, ferðastyrkur til og frá Íslandi og dagpeningar. Höfundur tekur þátt í einni vinnustofu og heldur eitt erindi meðan á dvölinni stendur. Gjaldgengar eru umsóknir frá öllum spennusagnahöfundum sem eru félagsmenn í RSÍ. Frönskukunnátta er ekki skilyrði.
Fylla skal út umsóknareyðublað á heimasíðu RSÍ/hér að neðan. Með umsóknum skal fylgja:
- Ferilskrá höfundar (á ensku).
- Kynningarbréf þar sem höfundur tiltekur ástæður fyrir dvölinni (á ensku).
- Kynning á verkinu sem höfundur vinnur að í dvöl sinni (á ensku).
Öll viðhengi skal senda í tölvupósti á netfangið umsoknir@rsi.is.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er t.o.m. 7. desember 2022.