Search
Close this search box.

Auður Haralds látin

Auður Haralds rithöfundur lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 2. janúar 2024 eftir stutt veikindi. 

Auður fæddist í Reykjavík þann 11. desember 1947. Hún starfaði sem blaðamaður, þýðandi, útvarpskona og pistlahöfundur og sinnti verslunar-, skrifstofu- og verksmiðjustörfum. 

Fyrsta skáldsaga Auðar, Hvunndagshetjan: þrjár öruggar aðferðir til að eignast óskilgetin börn, kom út árið 1979. Hún vakti mikla athygli og opnaði umræðu í samfélaginu um heimilisofbeldi og kvennakúgun. 

Auður fylgdi þeirri bók eftir með bókinni Læknamafían, lítil pen bók, sem út kom 1980, þar sem ráðist er að fjandsamlegu kerfi og hvunndagshetjan berst áfram gegn kvenfjandsamlegum viðhorfum. Hlustið þér á Mozart? kom út 1982 en verkið er íronísk ádeilda á innantómt líf heimavinnandi húsmóður sem les formúlukenndar ástarsögur til að drepast ekki úr leiðindum. Síðar gerði Auður makalaust grín að þeirri bókmenntategund í Ung, há, feig og ljóshærð sem er paródía á slíkar ástarsögur.

Auður skrifaði barnabækurnar um prakkarann Elías, þá fyrstu skrifaði hún ásamt Valdísi Óskarsdóttur. Unglingabókin Baneitrað samband á Njálsgötunni kom út 1985 en síðar var gerð leikgerð eftir henni sem sett var á svið í Íslensku óperunni og víðar. 

Auður tilheyrir þeim hópi kvenrithöfunda sem hætti að mestu að skrifa á níunda áratugnum en árið 2007 skrifaði hún Litlu, rauðhærðu stúlkuna, barnabók með myndskreytingum eftir Vigdísi Hlíf Sigurðardóttur. Árið 2000 birtist eftir Auði framhaldssaga á vefritinu Skrik.is en kom síðan út á bók 2022 og nefnist Hvað er Drottinn að drolla?

Rithöfundasamband Íslands þakkar Auði samfylgdina og vottar fjölskyldu og vinum hennar samúð.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email