Rithöfundasamband Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að nálgast þróun gervigreindar með mennskuna að leiðarljósi. Mikilvægt er að kalla rithöfunda og aðra listamenn að borðinu til að marka stefnu og bregðast við hraðri þróun tækninnar, og svara grundvallarspurningum um það hvernig framtíð við viljum.
Tæknin skapar mörg tækifæri fyrir íslenska tungu, bókmenntir og listir, en einnig hættu á höfundarréttarbrotum, listrænni hnignun og lakari kjörum listamanna.
Rithöfundasamband Íslands gagnrýnir harðlega að hvorki sambandið né önnur samtök listamanna á Íslandi hafi verið kölluð að borðinu við vinnu menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins við aðgerðaráætlun um gervigreind 2025-2027 sem birt var síðasta sumar, enda ber áætlunin vitni um takmarkaðan skilning á þeim áskorunum sem hinar skapandi greinar standa frammi fyrir vegna gervigreindar.
Rithöfundasambandið áréttar að hagnýting á höfundaréttarvörðum hugverkum til þróunar á gervigreind, án heimildar rétthafa, felur í sér brot á höfundarétti. Nú þegar hefur verið gengið freklega á rétt höfunda um allan heim, þar á meðal íslenskra höfunda, við þróun gervigreindarforrita.
Rithöfundasambandið skorar á íslensk stjórnvöld að flýta lagasetningu varðandi notkun gervigreindar við gerð hugverka svo að tryggt megi verða að hagnýting á verkum rithöfunda í gervigreindarkerfum eigi sér eingöngu stað með skýru samþykki og gegn sanngjarnri greiðslu.
Rithöfundasambandið skorar jafnframt á opinberar stofnanir sem og einkafyrirtæki að nýta ekki gervigreind við lausn verkefna sem áður hafa verið á verksviði listamanna og höfunda, og taka þannig ekki þátt í atlögu gegn mannlegri sköpun og möguleikum listamanna til að afla sér lífsviðurværis með sköpun sinni.
Rithöfundasamband Íslands er samtök skapandi fólks. Félagsmenn okkar túlka samtíma sinn, fortíð og framtíð með verkfærum skáldskaparins, orðkynnginnar, ástríðunnar, fræðanna og listasögunnar. Höfundar og listamenn hreyfa við tilfinningum, varpa nýju ljósi á menningu okkar og málefni líðandi stundar, og skapa þannig tengsl á milli fólks. Rithöfundasamband Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að láta listina aldrei gjalda tækninnar.



