Á þjóðhátíðardaginn sæmdi Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, fjórtán manns heiðursmerki íslensku fálkaorðunnar við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Fálkaorðan er æðsta heiðursmerki sem íslenska ríkið veitir mönnum. Forseti Íslands er stórmeistari orðunnar og sæmir einstaklinga heiðursmerkinu að tillögu Orðunefndar.
Meðal orðuhafa voru tveir félagsmenn í Rithöfundasambandinu, þeir Andri Snær Magnason og Þorsteinn Eggertsson. Andri hlaut fálkaorðuna fyrir skapandi störf í þágu framtíðar, og Þorsteinn fyrir framlag til íslenskrar dægurmenningar. Á myndinni sjást þeir í hópi orðuhafa ásamt Höllu Tómasdóttur.
??Rithöfundasamband Íslands óskar þeim innilega til hamingju með verðskuldaðan heiður.



