Fjöruverðlaunin afhent

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára, voru afhent í Höfða fimmtudaginn 5. mars.

Í flokki fagurbókmennta hlaut Maó Alheimsdóttir verðlaunin fyrir ljóðabókina Hvalbak.

Í flokki barna- og unglingabókmennta hreppti Brynhildur Þórarinsdóttir verðlaunin fyrir Silfurgengið.

Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis voru það þær Kristín Guðrún Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Auður Aðalsteinsdóttir sem voru verðlaunaðar fyrir bókina Drífa Viðar.

Rithöfundasamband Íslands sendir höfundunum öllum heillaóskir!

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email