Leiftrandi góð ljóð í hádeginu!

Lesið verður úr ljóðabókum sem tilnefndar hafa verið til ljóðaverðlaunanna Maístjörnunnar í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu í hádeginu, kl. 12-13, miðvikudaginn 7. maí.

Tilnefndar bækur eru, í stafrófsröð:
Aðlögun – Þórdís Gísladóttir. Útgefandi: Benedikt.
Ég hugsa mig – Anton Helgi Jónsson. Útgefandi: Mál og menning.
Flaumgosar – Sigurbjörg Þrastardóttir. Útgefandi: JPV.
Geðhrærivélar – Árni Jakob Larsson. Útgefandi: Sæmundur.
Ógeðslegir hlutir – Sunneva Kristín Sigurðardóttir. Útgefandi Pirrandi útgáfa.
Þar sem dragsúgurinn er hvítur refur – Eyþór Árnason. Útgefandi: Bjartur – Veröld.

Ljóðaverðlaunin Maístjarnan eru einu verðlaunin á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Tilnefndar bækur eru til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar.

Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni miðvikudaginn 14. maí kl. 15:00.
Dómnefnd skipa Sölvi Björn Sigurðsson fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Kamilla Einarsdóttir fyrir hönd Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email