Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna ljóðabókar útgefinnar 2017 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag.
Tilnefnd eru:
Bergþóra Snæbjörnsdóttir – Flórída (Benedikt bókaútgáfa)
Elísabet Kristín Jökulsdóttir – Dauðinn í veiðarfæraskúrnum (Viti menn)
Eydís Blöndal – Án tillits (Eydís Blöndal)
Jónas Reynir Gunnarsson – Stór olíuskip (Partus)
Kristín Ómarsdóttir – Kóngulær í sýningargluggum (JPV útgáfa)
Tilnefndar bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar.
Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2017 sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar. Dómnefnd skipa Magnea J. Matthíasdóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Rannver H. Hannesson fyrir hönd Landsbókasafnsins.
Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni 18. maí, á degi ljóðsins.
Verðlaunafé er 350 þúsund krónur.
Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að hvetja skáld til að yrkja og koma ljóðum sínum í útgáfu.