Dr. Þorvarður Helgason, rithöfundur og leikhúsgagnrýnandi fæddist í Reykjavík 18. maí 1930. Hann lést 7. desember s.l. Þorvarður var stofnfélagi í Rithöfundasambandi Íslands.
Þorvarður nam leikhúsfræði, frönsku og leikstjórn erlendis og tók lokapróf í leikstjórn 1958, Hann stofnaði ásamt öðrum leikfélagið Grímu og leikstýrði þar. Þorvarður útskrifaðist sem doktor í leikhúsfræðum frá Universität Wien 1970.
Árið 1970 kom hann til starfa hjá Morgunblaðinu og var þar leikhúsgagnrýnandi blaðsins í allmörg ár. Sama ár hóf hann einnig kennslu við Menntaskólann við Hamrahlíð, og kenndi hann þar einkum þýsku en einnig áfanga sem tengdust leikhúsi og leiklist og setti jafnframt upp nokkur leikrit. Þá kenndi hann tilvonandi leikurum leiklistarsögu um árabil.
Fyrsta skáldsaga Þorvarðar, Eftirleit, kom út árið 1970, fleiri skáldsögur fylgdu í kjölfarið. Hann ritaði fjölda leikrita og einþáttunga fyrir útvarp, sjónvarp og svið og þýddi leikrit og skáldverk.
Vigfús Geirdal sagnfræðingur og þýðandi fæddist í Reykjavík 24. janúar 1948. Hann lést 14. desember s.l.
Vigfús lauk BA-prófi í íslensku og sögu og seinna kennararéttindanámi frá Háskóla Íslands Einnig nam hann sagnfræði við Háskólann í Manitoba, Kanada, og síðar Svíþjóð þar sem hann lauk MA-prófi.
Vigfús þýddi átta bækur metsöluhöfundarins Henning Mankell úr sænsku á árunum 1998 til 2007. Á seinni árum vann hann að útgáfu á dagbókum afa síns og nafna, Vigfúsar Grænlandsfara.
Stefán Sigurkarlsson lyfjafræðingur og rithöfundur fæddist í Reykjavík 12. júlí 1930. Hann lést 17. desember s.l.
Stefán var lyfjafræðingur að mennt og lauk prófi frá Danmarks Farmaceutiske Höjskole 1957. Hann vann sem apótekari þar til hann fór á eftirlaun.
Stefán stundaði ritstörf og gaf út þrjár ljóðabækur. Einnig smásögusöfnin Hólmanespistla og Raddir frá Hólmanesi, og skáldsöguna, Handan við Regnbogann.
Rithöfundasamband Íslands þakkar Þorvarði, Vigfúsi og Stefáni samfylgdina og sendir fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur.