Search
Close this search box.

Verðlaun bóksala 2018

Tilkynnt var í Kiljunni þann 12. desember hvaða bækur hljóta Verðlaun bóksala í ár. Verðlaun eru veitt í átta flokkum.

Íslensk skáldverk

Ungfrú Ísland eftir Auði Övu Ólafsdóttur hlaut fyrsta sæti í flokki íslenskra skáldverka, Kláði eftir Fríðu Ísberg hlaut annað sæti og Þorpið eftir Ragnar Jónasson lenti í þriðja sæti.

Ljóðabækur

Sálumessa eftir Gerði Kristnýju hlaut fyrsta sætið í flokki ljóðabóka, Smáa letrið eftir Lindu Vilhjálmsdóttur annað sætið og Því miður eftir Dag Hjartarson hreppti þriðja sætið.

 Ungmennabækur

Í flokki ungmennabóka var Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur efst á lista, Rotturnar eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur hreppti annað sætið og Sölva saga Daníelssonar eftir Arnar Már Arngrímsson lenti í þriðja sætinu.

 Ævisögur

Hasim eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur hlaut efsta sætið í flokki ævisagna, Hornauga eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur hlaut annað sæti og Skúli fógeti eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur lenti í þriðja sæti ásamt Hundakæti eftir Þorstein Vilhjálmsson.

 Handbækur

Í flokki handbóka lenti Flóra Íslands eftir Þóru Ellen Þórhallsdóttur, Hörð Kristinsson og Jón Baldur Hlíðberg í fyrsta sæti, Stund klámsins eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur í öðru sæti og Gleðin að neðan eftir Ninu Brochmannog Ellen Støkken Dahl (í þýðingu Sögu Kjartansdóttur) í þriðja sæti.

 Íslenskar barnabækur

Ljóðpundari eftir Þórarinn Eldjárn með myndskreytingum eftir Sigrúnu Eldjárn hlaut fyrsta sæti í flokki íslenskra barnabóka, annað sætið kom í hlut Skarphéðins Dungal eftir Hjörleif Hjartarson með myndskreytingum eftir Rán Flygenring og Þitt eigið tímaferðalag eftir Ævar Þór Benediktsson lenti í þriðja sæti.

 Þýddar barnabækur

Múmínálfarnir eftir Tove Jansson í þýðingu Steinunnar Briem og Þórdísar Gísladóttur hlaut fyrsta sætið, Miðnæturgengið eftir David Walliams í þýðingu Guðna Kolbeinssonar lenti í öðru sæti og Handbók fyrir ofurhetjur eftir Elias og Agnes Våhlund í þýðingu Ingunnar Snædal í hinu þriðja.

 Þýddar skáldsögur

Í flokki þýddra skáldsagna lenti Allt sundrast eftir Chinua Achebe í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur í fyrsta sæti, Smásögur heimsins: Asía og Eyjaálfa (ýmsir þýðendur) í öðru sæti og Homo sapína eftir Niviac Korneliussen í þýðingu Heiðrúnar Ólafsdóttur í þriðja sæti.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email