Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir hlaut í gær Viðurkenningu Hagþenkis fyrir ritið Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku. Útgefandi er Árnastofnun.
Í rökstuðningi viðurkenningarráðs segir meðal annars: „Athyglisverð umfjöllun um einstakar rímur sem hafa aldrei áður komið út á prenti. Saga þeirra er rakin í víðu samhengi, greint frá handritum og bent á mögulegan höfund.“
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings en að valinu stendur sérstakt viðurkenningarráð skipað fimm félagsmönnum á mismunandi fræðasviðum til tveggja ára í senn.
Í ráðinu sátu að þessu sinni: Arnþór Gunnarsson, Árni Sigurjónsson, Ásdís Ingólfsdóttir, Ingibjörg Eyþórsdóttir og Kristján Leósson. Hér má sjá rökstuðning þeirra í heild og hér má lesa þakkarræðu Valgerðar.
Rithöfundasamband Íslands óskar Valgerði innilega til hamingju með viðurkenninguna!


