Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis

Formaður Hagþenkis, Gunnar Þór Bjarnason, kynnti tilnefningar Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2024 í Borgarbókasafninu í Grófinni þann 22. janúar að viðstöddum tilnefndum höfundum og gestum þeirra, stjórn Hagþenkis og viðurkenningarráðinu. Í því sátu Halldóra Jónsdóttir, Kristján Leósson, Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, Unnur Þóra Jökulsdóttir og Vilhjálmur Árnason. Friðbjörg Ingimarsdóttir er verkefnastýra ráðsins. Viðurkenning Hagþenkis verður veitt í Þjóðabókhlöðunni í lok febrúar við hátíðlega athöfn og hlýtur sá höfundur 1.500.000 kr. 

Eftirfarandi rit og höfundar eru tilnefndir og óskar Rithöfundasamband Íslands þeim innilega til hamingju með verk sín og tilnefningarnar:

Árni Heimir Ingólfsson.

Tónar útlaganna. Þrír landflótta tónlistarmenn sem mótuðu íslenskt menningarlíf. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag.

Vel skrifuð örlagasaga þriggja einstaklinga sem umbyltu tónlistarmenningu landsins. Bókin er ríkulega studd heimildum og prýdd mörgum myndum.

Ásdís Ingólfsdóttir.

Undirstaðan – Efnafræði fyrir framhaldsskóla. Útgefandi: Iðnú.

Vandað kennsluefni í rafrænu formi sem kynnir undirstöðuatriði efnafræðinnar. Efnið er lagað að nútímaþörfum nemenda og kennara með margskonar innbyggðum hjálpartækjum, auk fjölda vísana í ítarefni sem nálgast má á veraldarvefnum.

Erla Hulda Halldórsdóttir.

Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur 1809–1871. Útgefandi: Bjartur.

Áhrifarík ævisaga sem varpar nýju ljósi á 19. öldina og veitir einstaka innsýn í heim kvenna. Byggir á ómetanlegum bréfum Sigríðar til bróður síns sem spanna hálfa öld.

Guðjón Friðriksson.

Börn í Reykjavík. Útgefandi: Forlagið.

Fræðandi og forvitnileg bók um þær stórfelldu breytingar sem orðið hafa á íslensku samfélagi og aðstæðum barna í borginni í hálfa aðra öld. Fallegur prentgripur með  fjölda einstakra ljósmynda.

Guðmundur Jónsson (ritstjóri).

Ástand Íslands um 1700. Lífshættir í bændasamfélagi. Útgefandi: Sögufélag.

Yfirgripsmikið verk sem er afrakstur margra ára rannsókna á lífsháttum á Íslandi við upphaf 18. aldar. Unnið er á nýstárlegan, þverfaglegan hátt úr frumheimildum sem eru einstæðar á alþjóðavísu.

Gunnar Harðarson.

Fingraför spekinnar. Kaflar úr sögu íslenskrar heimspeki á miðöldum. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag.

Vandað og vel skrifað ritgerðasafn sem varpar nýju ljósi á heimspekilega hugsun í íslenskum fornritum. Hugmyndir, hugtök og rökfærslur eru skýrð í ljósi heimspeki miðalda.

Ingunn Ásdísardóttir.

Jötnar hundvísir. Norrænar goðsagnir i nýju ljósi. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag.

Höfundur kannar frumheimildir um jötna og jötnameyjar í norrænum kveðskap og forminjum óháð túlkun kristinna miðaldamanna og kemst að frumlegum og áhugaverðum niðurstöðum í aðgengilegu fræðiriti.

Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir.

Einar, Anna og safnið sem var bannað börnum. Útgefandi: Forlagið.

Fróðleg og falleg barnabók sem opnar persónulega leið inn í sögu merkilegs safns. Samspil myndefnis og texta varpar áhugaverðu ljósi á árdaga íslenskrar nútímalistasögu.

Skafti Ingimarsson.

Nú blakta rauðir fánar. Saga kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar á Íslandi 1918–1968. Útgefandi: Sögufélag.

Mikilvægt innlegg í íslenska stjórnmálasögu tuttugustu aldarinnar. Verkið veitir nýja innsýn í þátttöku almennings í flokksstarfi og verkalýðsbaráttu um land allt.

Þórir Óskarsson.

Svipur brotanna. Líf og list Bjarna Thorarensen. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag.

Metnaðarfull ævisaga byggð á ítarlegum rannsóknum og hugmyndasögulegri greiningu. Ljóðlist skáldsins er sett í samhengi við þjóðlegan arf og alþjóðlega strauma.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email