Search
Close this search box.

Tilnefningar til Maístjörnunnar

Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, verður veitt í áttunda sinn í maí.

Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna ljóðabóka útgefinna 2023 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag.

Tilnefndar bækur eru:

Áður en ég breytist eftir Elías Knörr. Útgefandi: Mál og menning

Dulstirni/Meðan glerið sefur eftir Gyrði Elíasson. Útgefandi: Dimma

Vandamál vina minna eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur. Útgefandi: Bjartur

Flagsól eftir Melkorku Ólafsdóttur og Hlíf Unu Bárudóttur. Útgefandi: Mál og menning

Til hamingju með að vera mannleg eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Útgefandi: JPV

Í myrkrinu fór ég til Maríu eftir Sonju B. Jónsdóttur. Útgefandi: Veröld

Tilnefndar bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar frá og með þriðjudeginum 23. apríl.

Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2023, alls 83, sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar. Dómnefnd skipa Guðrún Eva Mínervudóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Jakub Stachowiak fyrir hönd Landsbókasafnsins.

Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni þann 15. maí.

Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að vekja sérstaka athygli á blómlegri ljóðabókaútgáfu á Íslandi.

Rithöfundasamband Íslands óskar tilnefndum höfundum innilega til hamingju!

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email