Tilnefningar til Maístjörnunnar 2017

Tilnefningar til Maistjornunnar
Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Jónas Reynir Gunnarsson, Eydís Blöndal, Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Kristín Ómarsdóttir. Mynd Ólafur J. Engilbertsson

Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna ljóðabókar útgefinnar 2017 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag.

Tilnefnd eru:

Bergþóra Snæbjörnsdóttir – Flórída (Benedikt bókaútgáfa)

Elísabet Kristín Jökulsdóttir – Dauðinn í veiðarfæraskúrnum (Viti menn)

Eydís Blöndal – Án tillits (Eydís Blöndal)

Jónas Reynir Gunnarsson – Stór olíuskip (Partus)

Kristín Ómarsdóttir – Kóngulær í sýningargluggum (JPV útgáfa)

Tilnefndar bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar.

Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2017 sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar. Dómnefnd skipa Magnea J. Matthíasdóttir  fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Rannver H. Hannesson fyrir hönd Landsbókasafnsins.

Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni 18. maí, á degi ljóðsins.
Verðlaunafé er 350 þúsund krónur.

Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að hvetja skáld til að yrkja og koma ljóðum sínum í útgáfu.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email