Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna
ljóðabókar útgefinnar 2018 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag.
Tilnefndir eru:
Ásdís Ingólfsdóttir – Ódauðleg brjóst (Partus)
Eva Rún Snorradóttir – Fræ sem frjóvga myrkrið (Benedikt bókaútgáfa)
Gerður Kristný – Sálumessa (Mál og menning)
Haukur Ingvarsson – Vistarverur (Mál og menning)
Linda Vilhjálmsdóttir – Smáa letrið (Mál og menning)
Sigfús Bjartmarsson – Homo economicus I (MTH útgáfa)
Tilnefndar bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar.
Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2018 sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar. Dómnefnd skipa Sveinn Yngvi Egilsson fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Eva Kamilla Einarsdóttir fyrir hönd Landsbókasafnsins.
Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í maí. Verðlaunafé er 350 þúsund krónur.
Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að hvetja skáld til að yrkja og koma ljóðum sínum í útgáfu.