Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir verðlaun fyrir Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin, Blóðdropann, um mánaðamótin janúar-febrúar á komandi ári á Bessastöðum. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk.
Félag íslenskra bókaútgefanda kostar verðlaunin.
Tilnefningar í flokki skáldverka:
- Ból eftir Steinunni Sigurðardóttur
- DJ Bambi eftir Auði Övu Ólafsdóttur
- Land næturinnar eftir Vilborgu Davíðsdóttur
- Dúnstúlkan í þokunni eftir Bjarna M. Bjarnason
- Náttúrulögmálin eftir Eirík Örn Norðdahl
Tilnefningar í flokki barna- og ungmennabóka:
- Bannað að drepa eftir Gunnar Helgason og Rán Flygenring myndhöfund
- Vísindalæsi – Hamfarir eftir Sævar Helga Bragason og Elías Rúna myndhöfund
- Hrím eftir Hildi Knútsdóttur
- Mömmuskipti eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur
- Stelpur stranglega bannaðar eftir Emblu Bachmann
Tilnefningar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:
- Alþýðuskáldin á Íslandi – Saga um átök eftir Þórð Helgason
- Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg – Baráttusaga Guðrúnar Jónsdóttur eftir Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttir
- Með verkum handanna – Íslenskur refilsaumur fyrri alda eftir Elsu E. Guðjónsson og Lilju Árnadóttir
- Samfélag eftir mál – Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi eftir Harald Sigurðsson
- Séra Friðrik og drengirnir hans – Saga æskulýðsleiðtoga eftir Guðmund Magnússon
Tilnefningar til Blóðdropans 2023, Íslensku glæpasagnaverðlaunanna eru:
- Blóðmeri eftir Steindór Ívarsson
- Borg hinna dauðu eftir Stefán Mána
- Heim fyrir myrkur eftir Evu Björg Ægisdóttur
- Maðurinn frá São Paulo eftir Skúla Sigurðsson
- Sæluríkið eftir Arnald Indriðason
Íslensku bókmenntaverðlaunin voru fyrst veitt 1989 og er ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur hvers ár. Félag íslenskra bókaútgefenda gerði fyrr á þessu ári samkomulag við Íslenska glæpafélagið um að taka yfir verklega framkvæmd Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans og eru verðlaunin því veitt samtímis í fyrsta sinn í ár.