Search
Close this search box.

Tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar

Tilkynnt var um tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2024 í Iðnó þann 15. apríl sl.

Alls eru 15 bækur tilnefndar í þremur flokkum:

Tilnefningar í flokki frumsaminna skáldverka

  • Hrím eftir Hildi Knútsdóttur (JPV útgáfa)
  • Bannað að drepa eftir Gunnar Helgason (Mál og menning)
  • Mömmuskipti eftir Arrndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur (Mál og menning)
  • Stolt eftir Margréti Tryggvadóttur (Mál og menning)
  • Svona tala ég eftir Helen Cova (Karíba)

Tilnefningar í flokki myndlýsinga

  • Skrímslavinafélagið myndlýsing Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir (JPV útgáfa)
  • Fjaðrafok í mýrinni myndlýsing Sigrún Eldjárn (Mál og menning)
  • Álfar myndlýsing Rán Flygenring (Angústúra)
  • Ég þori! Ég get! Ég vil! myndlýsing Linda Ólafsdóttir (Mál og menning)
  • Einstakt jólatré myndlýsing Linn Janssen (Mál og menning)

Tilnefningar í flokki þýðinga

  • Múmínálfarnir og hafshljómsveitin þýðing Gerður Kristný (Mál og menning)
  • Þegar Ída litla vildi gera skammarstrik þýðing Þórarinn Eldjárn (Mál og menning)
  • Tannburstunardagurinn mikli þýðing Ásta Halldóra Ólafsdóttir (Kvistur bókaútgáfa)
  • Hvernig er koss á litinn? þýðing Svanlaug Pálsdóttir (Kvistur bókaútgáfa)
  • Hænsnaþjófurinn þýðing Ásta Halldóra Ólafsdóttir (Kvistur bókaútgáfa)

Í dómnefnd voru: Sunna Dís Jensdóttir (formaður), Anna C. Leplar, Arngrímur Vídalín

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar verða veitt við hátíðlega athöfn í Höfða, þann 24. apríl kl. 11:00.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email