Tilnefning: Tjörnin eftir Rán Flygenring

Rán Flygenring hefur verið tilnefnd til barna- og ungmennabókmenntaverðlauna Vestnorræna ráðsins árið 2026 fyrir bókina Tjörnin! Rán er höfundur bæði texta og mynda. Bókin kom út hjá Angústúru árið 2024 og hefur hlotið ýmsar tilnefningar og verðlaun.

Auk Tjarnarinnar eru tilnefnd til verðlaunanna bækurnar Í morgun fari ég aftur at spæla við babba, eftir Færeyinginn Helenu Kannuberg, myndskreytt af Lenu Nicolajsen, og Pilu, eftir Grænlendinginn Ullu Pedersen, myndskreytt af Susanne Jensen.

Verðlaunin verða veitt á ársfundi ráðsins sem fram fer hér á landi þann 31. ágúst næstkomandi.

Rithöfundasambandið sendir Rán heillaóskir með tilnefninguna!

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email