Search
Close this search box.

Tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2016

Barnabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Tilnefningar til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2016

Þrettán verk eru tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2016. Arnar Már Arngrímsson og Ragnhildur Hólmgeirsdóttir eru tilnefnd fyrir hönd Íslands, Arnar Már fyrir skáldsöguna Sölvasaga unglings (2015) og Ragnhildur fyrir skáldsöguna Koparborgin (2015). Tilkynnt verður um verðlaunahafa þann 1. nóvember næstkomandi í tónleikahúsi DR í Kaupmannahöfn. Verðlaunafé er 350 þúsund d.kr. Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt frá árinu 2013. Á vef Norðurlandaráðs má sjá lista yfir önnur tilnefnd verk 2016.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email