Search
Close this search box.

Sólveig Pálsdóttir fer til La Rochelle

Sólveig Pálsdóttir

Rithöfundasamband Íslands, sendiráð Frakklands á Íslandi og Alliance Française í Reykjavík ásamt Centre Intermonde de La Rochelle í Frakklandi skipuleggja nú í þriðja sinn rithöfundaskipti milli Reykjavíkur og La Rochelle. Fyrsta árið var tileinkað myndasöguhöfundum, annað árið barnabókahöfundum og í ár var spennusagnahöfundum boðið að sækja um. 

Franski spennusagnahöfundurinn Thomas Fecchio kom til Íslands í haust og dvaldi í Gunnarshús í mánuð. Íslenski spennusagnahöfundurinn Sólveig Pálsdóttir hefur verið nú verið valin til að dvelja mánuð í La Rochelle hjá Centre Intermonde et la Maison des écritures í maí á þessu ári.

Tilgangur dvalarskiptanna er að efla menningarlegt og listrænt samstarf milli Frakklands og Íslands. RSÍ, sendiráð Frakklands á Íslandi, Alliance Française í Reykjavík og Centre Intermonde de La Rochelle greiða fyrir dvöl, uppihald og ferðir höfundanna.

Við óskum Sólveigu Pálsdóttur innilega til hamingju með dvalarstyrkinn !

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email