Pétur Gunnarsson rithöfundur, fyrrverandi formaður RSÍ og heiðursfélagi sambandsins var nýverið sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.
Pétur hefur skrifað á annan tug skáldsagna, ævisöguleg rit um tvo helstu rithöfunda Íslendinga, rit af sjálfsævisögulegum toga, pistla og þýðingar á öndvegisverkum franskra bókmennta. Hann hefur einnig unnið merkt starf sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi og sjónvarpi og höfundur pistla af margvíslegum toga, að ógleymdum sönglagatextum sem lifa enn góðu lífi á margra vörum.
Heiðursdoktorsnafnbótin var veitt við hátíðlega athöfn í hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla Íslands. Torfi Tulinius prófessor og Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands ávörpuðu gesti. Gauti Kristmannsson, forseti íslensku- og menningardeildar, stýrði athöfninni og lýsti Pétur heiðursdoktor.
Við athöfnina flutti Pétur ávarp sem hann nefndi Laumufarþegann. Þar sagði hann meðal annars frá námsárum sínum í Frakklandi, þangað sem hann fór til að freista gæfunnar sem rithöfundur. Ferðasögunni lauk þar sem Pétur var kominn til Aix-en-Provence og gekk inn í kennslustofu í háskólanum þar sem kennari sat og greindi heimspeki Pascals. Þar ákvað hann að innrita sig í heimspeki og gera hana að sinni matmóður.
Rithöfundasamband Íslands sendir Pétri innilegar hamingjuóskir með verðskuldaðan heiður!



