Search
Close this search box.

Listamannalaun 2021 – umsóknarfrestur til 1. október

Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem úthlutað verður árið 2021 í samræmi við ákvæði laga nr. 57/2009.

Umsóknarfrestur rennur út 1. október 2020.

Úthlutað verður úr eftirfarandi sjóðum:
launasjóður hönnuða
launasjóður myndlistarmanna
launasjóður rithöfunda
launasjóður sviðslistafólks
launasjóður tónlistarflytjenda
launasjóður tónskálda

Í umsóknum er óskað eftir upplýsingum um feril umsækjenda, listrænt gildi verkefnis og rökstudda tímaáætlun. Einnig skulu fylgja upplýsingar um náms- og starfsferil svo og verðlaun og viðurkenningar. Þessir þættir liggja að jafnaði til grundvallar ákvörðun um úthlutun starfslauna.

Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar. Umsóknir eru einstaklingsumsóknir. Í vinnuáætlun er hægt að tilgreina samstarf sérstaklega. Eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum.

Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað til stjórnar listamannalauna, sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009.

Vakin er athygli á að áfram verður hægt að fella starfslaun sviðslistamanna inn í atvinnuleikhópaumsóknir.

Aðgangur að umsókn, eyðublöð fyrir framvinduskýrslu ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á vefslóðinni http://www.listamannalaun.is.

Nánari upplýsingar veita Ragnhildur Zoëga og Óskar Eggert Óskarsson á skrifstofu Rannís, listamannalaun@rannis.is.

Stjórn listamannalauna, ágúst 2020

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email