Þórhallur Þórhallsson skáld fæddist 9. september 1946. Hann lést 2. febrúar s.l.
Þórhallur vann m.a sem aðalbókari skrifstofu Seltjarnarneshrepps, skrifstofustjóri Arkitektafélags Íslands og bókavörður á Borgarbókasafni Reykjavíkur.
Þórhallur gaf út ljóðabækurnar Fyrvera (ásam öðrum) 1982, Vetrarkvíða 1984 og Feigðarleik 2010. Einnig birti hann ljóð í ýmsum blöðum og tímaritum.
Rithöfundasamband Íslands þakkar Þórhalli samfylgdina og sendir fjölskyldu hans og vinum samúðarkveðjur.