Í kvöld, þriðjudaginn 26. október mun Arthúr Björgvin Bollason kynna þýðingu sína á skáldsögunni Hýperíon eftir Friedrich Hölderlín í Gunnarshúsi. Kynningin hefst kl 18.
Friedrich Hölderlín (1770 – 1843) var eitt af fremstu ljóðskáldum Þjóðverja. Hýperíon eða einfarinn á Grikklandi var eina skáldsagan, sem hann sendi frá sér um dagana. Sagan er talin eitt merkasta skáldverk rómantíska tímabilins í Þýskalandi í óbundnu máli.
Arthúr Björgvin spjallar um skáldið Friedrich Hölderlín og les brot úr þýðingu sinni á þessu sígilda meistaraverki, sem nú kemur fyrir sjónir íslenskra lesenda í fyrsta sinn.
Léttar veitingar verða í boði. Allir velkomnir!