Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, afhenti í dag, þriðjudaginn 25. janúar, Íslensku bókmenntaverðlaunin 2021, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru kostuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda. Auk þess er verðlaunahöfum afhent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripir, hannaðir af Jóni Snorra Sigurðssyni á gullsmíðaverkstæði Jens; opin bók á granítstöpli með nafni verðlaunahöfundar og bókar hans.
Verðlaunin skiptust í þrjá flokka og þeir sem að þessu sinni hlutu verðlaunin voru:
Fræðibækur og rit almenns efnis:
Sigrún Helgadóttir fyrir bókina Sigurður Þórarinsson : Mynd af manni I-II. Útgefandi: Náttúruminjasafn Íslands
Barna- og ungmennabækur:
Þórunn Rakel Gylfadóttir fyrir bókina Akam, ég og Annika. Útgefandi: Angústúra
Skáldverk:
Hallgrímur Helgason fyrir bókina Sextíu kíló af kjaftshöggum. Útgefandi: JPV útgáfa
Rithöfundasamband Íslands óskar höfundum innilega til hamingju með verðlaunin!