Search
Close this search box.

Fjöruverðlaunin afhent

Fjöruverðlaunin 2023

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi, voru afhent við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.

Gerður Kristný hlaut verðlaun í flokki fagurbókmennta fyrir ljóðabálkinn Urtu

Í umsögn dómnefndar segir:

Ljóðmælandi Urtu eftir Gerði Kristnýju er kona sem býr við nyrsta haf. Lífsbaráttan er hörð, vetur herja með hafís og kulda. Maðurinn deyr, barn deyr og önnur áföll fylgja en konan og börn hennar gefast aldrei upp. Þau þrauka. Konan hjálpar urtu að kæpa, mörk milli manns og dýrs, menningar og náttúru hverfa í þessari göldróttu bók. Textinn er meitlaður, ljóðin hefðbundin í formi með stuðlum og innrím sem minnir á forna bragarhætti. Það undirstrikar einnig tímaleysi og  skírskotun verksins til þeirrar stöðugu lífsbaráttu sem er hlutskipti manna og dýra.

Kristín Svava Tómasdóttir hlaut verðlaun í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis fyrir Farsótt: Hundrað ár í Þingholtsstræti 25

Í umsögn dómnefndar segir:

Á horni Þingholtsstrætis og Spítalastígs stendur yfir aldargamalt, tveggja hæða timburhús með viðburðaríka sögu; fyrsta sjúkrahús Reykvíkinga, farsóttarspítali, geðsjúkrahús og gistiskýli fyrir heimilislausa. Í dag er það mannautt og ber dulúðlegt nafn með rentu. Í Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 rekur Kristín Svava Tómasdóttir sögu þessa merka húss, sem umfram allt er litrík saga fólksins sem húsið hýsti og samfélagsins sem skóp það.

Arndís Þórarinsdóttir hlaut verðlaun í flokki barna- og unglingabókmennta fyrir skáldsöguna Kollhnís:

Í umsögn dómnefndar segir:

Í Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur er hinn ungi Álfur fimleikastrákur aðalsöguhetjan og sögumaðurinn. Eftir því sem frásögn hans vindur fram kemur í ljós að sjónarhorn Álfs er ekki mjög áreiðanlegt enda neitar hann að horfast í augu við að litli bróðir hans sé einhverfur, að frænka hans eigi við fíknivanda að etja og að besti vinur hans sé lesblindur. Höfundur leikur fimlega á allan tilfinningaskalann og teflir fram sögumanni sem eignast hugi og hjörtu lesenda á öllum aldri. Sagan er í senn áhrifamikil, skemmtileg og spennandi en fyrst og fremst full af hlýju og mennsku.

Rithöfundasamband Íslands óskar Gerði Kristnýju, Kristínu Svövu og Arndísi til hamingju með verðlaunin!

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email