Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi, voru afhent við hátíðlega athöfn þann 8. mars 2021, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna.
Verðlaunin hlutu:
- Í flokki fagurbókmennta:
Hetjusögur eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur (Benedikt bókaútgáfa) - Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis:
Konur sem kjósa: Aldarsaga eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur, Ragnheiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur (Sögufélag) - Í flokki barna- og unglingabókmennta:
Iðunn & afi pönk eftir Gerði Kristnýju (Mál og menning)
Þetta í fimmtánda sinn sem Fjöruverðlaunin eru veitt og í sjöunda sinn frá því að borgarstjóri Reykjavíkur, bókmenntaborgar UNESCO, gerðist verndari verðlaunanna. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri bauð höfunda velkomna í Höfða og streymt var af viðburðinum á samfélagsmiðlum. Verðlaunahafar fengu verðlaunagripi gerða af listakonunni Koggu.
Rithöfundasamband Íslands óskar Gerði Kristnýju, Kristínu Svövu Tómasdóttur og öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju með verðlaunin!